Fara í efni


Aðalfundur Norðurorku hf. var haldinn í fjarfundi þann 17. apríl 2020.

Hluthafahópurinn er óbreyttur, Akureyrarbær 98,26%, Hörgársveit 0,80%, Eyjafjarðarsveit 0,12%, Grýtubakkahreppur 0,18%, Svalbarðsstrandarhreppur 0,46% og Þingeyjarsveit 0,18%.

Á aðalfundi félagsins var stjórn kjörin óbreytt. Í henni sitja, Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður, Geir Kristinn Aðalsteinsson varaformaður, Eva Hrund Einarsdóttir ritari og meðstjórnendur eru þau Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir og Hlynur Jóhannsson. Í varastjórn voru kjörin, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, Hannes Karlsson, Hilda Jana Gísladóttir, Þórhallur Jónsson og Víðir Benediktsson.

Á starfsárinu hélt stjórnin 12 stjórnarfundi auk eigendafunda og funda vegna stefnumótunar.

 

Til baka - Yfirlit yfir starfsemina