Fara í efni
Ársskýrsla 2025

Rekstur samstæðunnar gekk vel á árinu 2025. Rekstrarhagnaður var 874 milljónir króna eftir skatta. Fjárfestingar voru 2.015 milljónir króna og lækkuðu um 126 milljónir frá fyrra ári. Handbært fé frá rekstri var 1.880 milljónir króna á árinu 2025 og hækkaði um 117 milljónir frá fyrra ári. Miðað við fjárfestingar upp á rúma 2 milljarða þá vantar talsvert upp á það að handbært fé frá rekstri standi undir fjárfestingum. Það bil, og meira til, þarf að brúa með lánsfé.

Viðfangsefni er og verður áfram að tryggja að tekjur standi undir þeim fjárfestingum sem nauðsynlegar eru til að viðhalda og efla innviði samfélagsins. Það er mikilvægur hluti af ábyrgri innviðastýringu að tryggja að rekstrargrundvöllurinn sé traustur og standi undir þeirri uppbyggingu sem samfélagið krefst.

Norðurorka fagnaði 25 ára afmæli á árinu 2025. Samhliða afmælishátíð fór fram formleg vígsla hreinsistöðvar fráveitu. Stöðin var tekin í notkun árið 2020 og ekki gafst tækifæri á þeim tíma til að fagna þeim stóra áfanga vegna samkomutakmarkana. Á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá stofnun, hefur starfsemin þróast í takt við stækkandi starfssvæði, breyttar opinberar kröfur, tækniframfarir og nú síðast breytt landslag er varðar þjóðaröryggi. Grunnstarfsemi Norðurorku er þó enn sú sama, þ.e. að tryggja órofinn rekstur þeirra veitna sem íbúar og fyrirtæki á starfssvæðinu treysta á alla daga, allan ársins hring.  

Vorið 2025 var boruð vinnsluhola í Ólafsfirði til að auka getu hitaveitunnar á svæðinu. Því miður skiluðu boranir ekki tilætluðum árangri en slík niðurstaða er hluti af eðli jarðhitaleitar. Næstu skref eru að framkvæma ítarlegar mælingar til að greina jarðlög á svæðinu betur. Á grundvelli þeirra verður metið hvert framhaldið verður.

Að lokinni borun í Ólafsfirði var borinn fluttur að Ytri Haga á Árskógsströnd þar sem boruð var 1.491 metra djúp vinnsluhola. Fljótt kom í ljós að vel hafði tekist til og mælingar í framhaldinu hafa staðfest það. Stefnt er að því að holan komist í nýtingu haustið 2027 og verður það mikilvægt skref í áformum Norðurorku um að tryggja samfélaginu aðgang að áreiðanlegri hitaveitu um ókomin ár.

Nú er að baki fyrsta heila rekstrarár nýtingar á glatvarma frá aflþynnuverkssmiðju TDK við Krossanes. Óhætt er að segja að „virkjunin“ standi undir þeim væntingum sem gerðar voru til verkefnisins. Samstarfið við TDK á þessum vettvangi hefur sannað mikilvægi sitt í öflun á heitu vatni og er um að ræða mikla lyftistöng í rekstri hitaveitunnar.

Mörg undanfarin ár hefur verið umtalsverð aukning í heitavatnsnotkun, langt umfram fólksfjölgun á svæðinu. Sú breyting varð þó á árinu 2025 að notkun dróst saman. Að stærstum hluta skýrist samdrátturinn af mildu veðurfari og einnig kann vitundarvakning um ábyrga nýtingu að styðja við minni notkun. Mikilvægt er að hafa í huga að bæði heitt og kalt vatn eru takmarkaðar auðlindir. Óhófleg notkun og sóun hraða þörf fyrir nýjar fjárfestingar sem að lokum endurspeglast í gjaldskrá. Því felast raunveruleg tækifæri í ábyrgri nýtingu og aukinni vitund um gildi þessara auðlinda.

Árið 2025 var óvenjulegt fyrir margra hluta sakir. Starfsmannavelta náði nýjum hæðum en fram til þessa hefur hún verið mjög lítil. Norðurorka hóf á árinu vinnu við að skipta um fjárhagskerfi félagsins og að innleiða önnur ný kerfi. Eitt af markmiðum með því verkefni er að færa tækniinnviði starfseminnar til nútímans og samhæfa kerfi. Þessi verkefni hafa reynst kostnaðarsöm, tímafrek og krefjandi. En með þrautseigju, útsjónarsemi og elju hefur okkar góða starfsfólki tekist að leysa úr þeim áskorunum.

Það eru jákvæð teikn á lofti í rekstrinum og horfur til lengri tíma eru góðar. Norðurorka er traust og öflugt fyrirtæki með sterka eiginfjárstöðu og burði til að takast á við þau krefjandi verkefni sem fram undan eru. Viðhald og endurnýjun innviða fela í sér umtalsverðar fjárhagslegar áskoranir. Þessi verkefni skapa ekki sjálfkrafa auknar tekjur á móti fjárfestingum og því þarf að mæta kostnaðinum í gegnum gjaldskrá veitnanna.

Stjórnvöld í landinu og samfélagið allt er að átta sig æ betur á mikilvægi ómissandi innviða. Öryggi raforkukerfa, vatnsbóla, hitaveitna, fráveitna og stafrænna kerfa er ekki lengur eingöngu rekstrarlegt viðfangsefni orku- og veitugeirans heldur hluti af þjóðaröryggi. Þessi kerfi, auk fjarskipta og stafrænna kerfa, mynda grunnstoðir samfélagsins. Áföll í einhverjum hluta þessara kerfa geta haft víðtæk áhrif á daglegt líf fólks og alla grunnþjónustu eins og heilbrigðiskerfi, atvinnulíf og samgöngur. Norðurorka, sem rekstraraðili ómissandi innviða, tekur hlutverk sitt alvarlega og finnur til ábyrgðar. Það er nauðsynlegt að taka tillit til þessarar nýju heimsmyndar þegar gerðar eru áætlanir og teknar eru ákvarðanir um forgangsröðun fjárfestinga. Norðurorka leggur ríka áherslu á öryggis- og gæðamál og vinnur stöðugt að því að efla varnir og viðhalda árvekni á þessum mikilvæga vettvangi.

Ég vil að lokum þakka stjórn Norðurorku fyrir ánægjulegt og uppbyggilegt samstarf á árinu 2025. Þá vil ég jafnframt færa starfsfólki félagsins einlægar þakkir fyrir fagmennsku og metnað í starfi. Framlag þess er lykillinn að því að Norðurorka er traust og öflugt fyrirtæki sem starfrækir ómissandi innviði samfélagsins ásamt því að vera lifandi og skemmtilegur vinnustaður.

Eyþór Björnsson
Forstjóri

 

Til baka á forsíðu