Fara í efni
Ársskýrsla 2025

Á starfsárinu 2025 voru haldnir 12 stjórnarfundir auk tveggja eigendafunda. Stjórn Norðurorku skipa auk mín Geir Kristinn Aðalsteinsson varaformaður, Hilda Jana Gísladóttir ritari, Sóley Björk Stefánsdóttir og Þórhallur Jónsson. Áheyrnarfulltrúi minni hluthafa er Þröstur Friðfinnsson sveitarstjóri Grýtubakkahrepps.

Á árinu 2025 urðu jákvæðar breytingar í rekstrinum sem sjá má í bætingu helstu mælikvarða. EBITDA og veltufjárhlutfall hækka, eiginfjárhlutfall styrkist og lausafjárstaða í árslok var góð. Veltufjárhlutfall er komið yfir einn og er það vel. Fjárfestingar eru miklar og verða það áfram. Þær þarf að fjármagna með lántöku að einhverju leyti og það er mikilvægt að afkoman sé góð, sérstaklega á meðan félagið stendur frammi fyrir miklum fjárfestingum. Tekjur aukast um 3,5% á milli ára en á sama tíma hækka rekstrargjöld um 9,6%. Munar þar mest um afskriftir vegna borholu í Ólafsfirði sem ekki skilaði árangri.

Þrátt fyrir aukna þekkingu og tækni varðandi jarðhitaleit er ekki á vísan að róa þegar borað er eftir heitu vatni. Það sannaðist enn og aftur þegar Norðurorka boraði eftir heitu vatni í Ólafsfirði en hafði ekki árangur sem erfiði. Það var því mikið gleðiefni þegar í ljós kom að borun á Ytri Haga á Ársskógsströnd bar árangur og virðist sú borhola mæta væntingum.

Samþykktir Norðurorku eru frá árinu 2008. Í kjölfar þess að Akureyrarbær samþykkti eigandastefnu sína var hafin skoðun á áhrifum þess á samþykktir Norðurorku. Einnig var tímabært að samþykktir félagsins yrðu samræmdar þeim lagabreytingum sem orðið hafa frá þeim tíma. Nú er þeirri vinnu lokið og samþykktirnar uppfærðar og aðlagaðar að eigendastefnu Akureyrarbæjar.

Vistorku var slitið á árinu, í samræmi við ákvörðun stjórnar þar um. Á fyrri hluta ársins ákvað stjórn að selja hlut sinn í Tengi hf. og Skógarböðum ehf. Er það liður í því að skerpa áherslu Norðurorku á veitustarfsemi sem er kjarnastarfsemi og megin tilgangur félagsins. Sala á hlutunum gekk í gegn í árslok.

Á árinu var unnið að því að selja söluhluta Fallorku. Ýmsar áskoranir urðu á veginum sem höfðu áhrif á framgang verkefnisins. En í október lauk Samkeppniseftirlitið umfjöllun sinni um gjörninginn án athugasemda og var þá hægt að klára söluna.

Fjórða árið í röð hlaut Norðurorka viðurkenningu jafnvægisvogarinnar. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem stuðlar að jöfnum hlut karla og kvenna í framkvæmdastjórnum fyrirtækja. Þess má geta að sjö sitja í framkvæmdaráði Norðurorku, fjórir karlar og þrjár konur. Jafnrétti er ákvörðun og við erum stolt að tilheyra fyrirtæki sem sýnir í verki að jafnrétti skiptir máli.

Ánægjulegt er að í lok árs var fyrirtækið tilnefnt til forvarnarverðlauna VÍS vegna ársins 2026 og er það viðurkenning á því góða og vandaða starfi sem unnið hefur verið í öryggismálum hjá Norðurorku á undanförnum árum. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa sterka öryggismenningu, vinna markvisst að forvörnum og slysavörnum, efla öryggisvitund og öryggishegðun starfsfólks og eru góð fyrirmynd fyrir önnur fyrirtæki í öryggismálum.

Að lokum vil ég þakka starfsfólki Norðurorku fyrir að gera Norðurorku að því flotta fyrirtæki sem það er. Forstjóra ásamt félögum mínum í stjórninni vil ég þakka fyrir gott og farsælt samstarf á árinu og hluthöfum fyrir ánægjulega samvinnu á árinu.

Hlynur Jóhannsson
Stjórnarformaður

Til baka á forsíðu