Heildarnotkun neysluvatns á Akureyri hefur haldist nær óbreytt um árabil þrátt fyrir íbúafjölgun, sem bendir til þess að meðalnotkun á hvern íbúa hafi farið minnkandi. Megnið af neysluvatninu kemur úr tveimur vatnslindum í Hlíðarfjalli, þ.e.a.s. Hesjuvallalindum og Sellandslindum, en það sem upp á vantar er sótt á vatnstökusvæðið á Vaglaeyrum í Hörgárdal. Á komandi árum er áformað að ljúka tengingu vatnsveitulagnar frá Vaðlaheiðargöngum til Akureyrar. Þá rekur Norðurorka jafnframt nokkrar minni vatnsveitur á starfssvæði sínu.
Móahverfi
Stærsta verkefni vatnsveitu Norðurorku á árinu 2025 var lagning vatnsveitukerfis í götur sem tilheyra öðrum áfanga í uppbyggingu Móahverfis, og var það gert samhliða gatnaframkvæmdum í hverfinu. Á árinu lauk framkvæmdum í neðri hluta hverfisins en gert er ráð fyrir að framkvæmdir í efri hluta hverfisins fari að miklu leyti fram árið 2026.
Vaðlaklif
Uppbygging er hafin í nýrri götu, Vaðlaklifi við Veigastaðaveg, þar sem gert er ráð fyrir sjö einbýlishúsalóðum. Seint á árinu hófst lagning vatnslagnar þegar lagður var um 340 metra langur kafli að götunni. Fyrsta húsið var tengt vatnsveitunni skömmu fyrir jól. Vinnu við lagnir í Vaðlaklifi er ekki lokið, en áætlað er að henni ljúki árið 2026 og verður vatnslögn í götunni sjálfri um 240 metrar að lengd.
Hagabyggð
Samhliða því að nýrri götu var bætt við í Hagabyggð í landi Glæsibæjar var lögð í hana bæði hita- og vatnsveita og nokkrar heimtaugar tengdar. Stofnlagnir fyrir heitt og kalt vatn sem lagðar voru í götuna námu samtals rúmum 210 metrum. Nokkrar heimtaugar eru enn ótengdar og verða þær tengdar þegar viðkomandi byggingar eru fullgerðar.
Lækjavellir Hörgársveit
Á iðnaðarsvæðinu á Lækjavöllum í Hörgársveit var ein gata framlengd á árinu og var vatnsveitan í götunni framlengd samhliða því um rúma 80 metra. Fyrirhuguð er frekari uppbygging á iðnaðarsvæðinu, en ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdir halda áfram.
Hrafnagil
Undanfarin tvö ár hafa staðið yfir framkvæmdir á Hrafnagili vegna nýrra lóða. Lagning vatnsveitulagna fór að mestu fram árið 2024, en árið 2025 voru lagðir tæpir 200 metrar af vatnsveiturörum utan heimtauga. Þar með er þessum áfanga vegna uppbyggingar á Hrafnagili lokið, að frágangi heimtauga undanskildum.
Sellandslindir
Norðurorka nýtir vatn úr tveimur vatnslindasvæðum í Hlíðarfjalli; annars vegar úr Hesjuvallalindum og hins vegar úr Sellandslindum. Á hvorum stað eru nokkrar lindir eða uppsprettur þar sem vatni er safnað saman og þaðan leitt í safntank. Þegar lindirnar voru upphaflega útbúnar til nýtingar voru settir timburstokkar við þær og steyptir brunnar til að safna vatninu í. Nú hafa flestar lindir í Hlíðarfjalli verið endurnýjaðar þar sem götuð plaströr hafa komið í stað timburstokka og brunna. Enn eru þó nokkrar lindir sem ekki hafa verið endurnýjaðar. Árið 2025 var ein slík lind endurnýjuð í Sellandslindum. Sett voru ný safnrör við lindina og mokað yfir þau. Að þessari framkvæmd lokinni var vatni hleypt frá lindinni svo að kerfið næði að hreinsast. Að nokkrum mánuðum liðnum verða tekin sýni af vatninu til að kanna hreinleika þess. Komi greiningar á sýnunum vel út verður lindin tengd inn á safnrör til Akureyrar.

Ýmsar framkvæmdir á árinu
Meðal annarra verkefna vatnsveitu Norðurorku á árinu 2025 voru lagning heimlagna í nýbyggingar, endurnýjun eldri heimlagna og endurnýjun á inntökum. Auk þess sinnti starfsfólk Norðurorku reglubundnum rennslismælingum á brunahönum og útskolunum á völdum brunahönum þar sem lítið rennsli er. Stærri vatnstankar veitunnar eru þrifnir reglulega og var einn tankur þrifinn á árinu. Þá komu upp nokkrir lekar á kerfinu sem þurfti að gera við en enginn þeirra reyndist þó alvarlegur.