Fara í efni
Ársskýrsla 2025

Lögð er rík áhersla á öfluga upplýsingagjöf í starfsemi Norðurorku.

Vefur Norðurorku og samfélagsmiðlar

Á vef fyrirtækisins má nálgast ýmsar upplýsingar um starfsemi Norðurorku og þá þjónustu sem fyrirtækið veitir. Þar birtast meðal annars fréttir frá helstu framkvæmdum, tilkynningar um þjónusturof ásamt ýmsum fróðleik sem snertir veitustarfsemi og orkunýtingu. Norðurorka vill vera í góðu sambandi við viðskiptavini og leggur sig fram um að miðla upplýsingum hratt og örugglega.

Einn liður kynningarmála er sýnileiki á samfélagsmiðlum. Miðlarnir Facebook, Instagram og LinkedIn voru nýttir til að koma skilaboðum á framfæri, segja frá framkvæmdum, miðla myndum og fróðleik og styðja virkni heimasíðu. Fylgjendum á samfélagsmiðlum Norðurorku fer sífellt fjölgandi og er það ánægjulegt.

Dæmi um vinsælar færslur á Facebook árið 2025:

  • Umfjallanir um boranir eftir heitu vatni Ólafsfirði og Ytri-Haga
  • Endurvirkjun Sellandslinda í Glerárdal
  • Kynning á starfseiningum fyrirtækisins
  • Starfsmaður Norðurorku fékk íslenskan ríkisborgararétt
  • Afmælishátíð í tilefni af 25 ára afmæli Norðurorku og vígsla hreinsistöðvar

Afmælishátíð í tilefni af 25 ára afmæli Norðurorku og vígsla hreinsistöðvar fráveitu

Laugardaginn 13. september var haldin afmælishátíð í tilefni 25 ára afmælis fyrirtækisins. Boðið var uppá opið hús á tveimur stöðum. Í hreinsistöð fráveitu við Sandgerðisbót fór fram formleg vígsla á stöðinni sem tekin var í notkun á tímum samkomutakmarkana. Það var kærkomið að geta loksins boðið gestum og gangandi að kynna sér hreinsistöðina en fyrir vígsluna höfðu leikskólabörn á Hólmasól málað fallegan borða sem setti svip sinn á stundina. Blái litur borðans táknar hafið og myndskreytingarnar sýna fiska, hvali og sjávargróður í hreinum sjó. Það þótti vel við hæfi að börnin, framtíðin sjálf, ættu sinn þátt í vígslu á þeirri samfélagslegu búbót sem hreinsistöð fráveitu sannarlega er.

Á höfuðstöðvum Norðurorku á Rangárvöllum var opið hús í tilefni afmælisins þar sem meðal annars var boðið uppá lifandi tónlist, fróðleg örerindi, grillaðar pylsur, popp og hoppkastala svo eitthvað sé nefnt. Gestum bauðst að setjast í vélar og tæki fyrirtækisins og allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi. Það var ánægjulegt hversu góð mætingin var og ljóst að íbúar á starfssvæði Norðurorku eru áhugasamir um fyrirtækið og starfsemi þess.

Vitundarvakning vegna stöðu hitaveitunnar

Á árinu hélt Norðurorka áfram með vitundarvakningu sína um stöðu hitaveitu, undir yfirskriftinni „Hitamál“. Markmiðið er að hvetja íbúa á þjónustusvæði Norðurorku til umhugsunar um eigin orkunotkun og benda á gagnlegar leiðir til umbóta í því samhengi. Sem fyrr voru auglýsingar tengdar vitundarvakningunni birtar á helstu vef- og prentmiðlum þjónustusvæðisins auk þess sem vísað var í góð ráð á vefsíðu fyrirtækisins um hvernig hægt er að sýna ábyrga orkunotkun þegar kemur að heitu vatni.

Sýnileiki í fjölmiðlum

Fjölmiðlar sýndu Norðurorku talsverða athygli árið 2025 og fjallað var um málefni Norðurorku í sjónvarpi, útvarpi, vef- og prentmiðlum. Helstu umfjöllunarefnin snéru að borun nýrra vinnsluhola á Ólafsfirði og Ytri Haga og jarðhitarannsóknum. Eins fjölluðu fjölmiðlar um áskoranir í hitaveitu og má í því samhengi nefna fróðlegt viðtal við vélfræðinginn Baldur Viðar Jónsson, um snjóbræðslukerfi, kulda og hitaveituinnviði í útvarpsþættinum Samfélagið RÚV á þriðja degi ársins 2025.

Kynningar og móttökur

Norðurorka leggur metnað í að taka vel á móti gestum sem óska eftir að koma í heimsókn til að kynna sér starfsemi fyrirtækisins ásamt þeim störfum sem þar eru unnin. Móttökur af þessu tagi gefa fyrirtækinu tækifæri til að koma ákveðnum sjónarmiðum á framfæri auk þess að vekja athygli á Norðurorku sem ákjósanlegum vinnustað í framtíðinni.

Gestir ársins hlaupa á hundruðum og eru á breiðum aldri. Hópar af öllum skólastigum hafa komið í heimsókn ásamt ýmsum félagasamtökum og fyrirtækjum. Sem dæmi um móttökur á árinu má nefna kynningarfund sem starfsfólki pípulagningafyrirtækja á starfssvæðinu var boðið til í febrúar. Tilgangur fundarins var að ræða ýmis sameiginleg atriði tengd vinnunni s.s. þrýstisvæði vatns á Akureyri, neysluvarmaskipta, orkumæla og fleiri atriði tengd veiturekstri í stóra samhenginu. Fundurinn gekk vel og voru gestir tæplega fimmtíu talsins en auk pípulagningarfólks mættu söluaðilar á svæðinu ásamt pípulagnanemum og kennurum í VMA. Með samtali sem þessu er samvinnan styrkt enn frekar, sem án efa skilar sér í betri og öruggari þjónustu við viðskiptavini okkar. Jarðhitaskólinn GRÓ (Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu) kom í sína árlegu heimsókn með nemendur frá ýmsum þjóðlöndum í júní en hlutverk skólans er að veita ungum sérfræðingum frá þróunarlöndunum þjálfun í rannsóknum og nýtingu jarðhita.

Árlegur ársfundur Norðurorku var haldinn í Menningarhúsinu Hofi í apríl og var hann að vanda vel sóttur. Á fundinum var boðið uppá fróðleg erindi auk þess sem starfsfólk sem lét af störfum á liðnu ári fyrir aldurs sakir var heiðrað og því þakkað fyrir gifturík störf í þágu fyrirtækisins.

Norðurorka tók þátt í ýmsum viðburðum á árinu 2025. Starfamessan var haldin í Háskólanum á Akureyri í mars þar sem elstu grunnskólanemunum gafst tækifæri á að kynnast ýmsri atvinnustarfsemi og þeim möguleikum sem bíða þeirra í framtíðinni. Þar kynnti Norðurorka þau margvíslegu störf sem unnin eru hjá fyrirtækinu.

Til viðbótar við ofan talið hefur starfsfólk Norðurorku farið víða og haldið fyrirlestra og kynningar ef óskað hefur verið eftir því, hvort sem er í skólum, fyrirtækjum eða hjá félagasamtökum.

 

Til baka á forsíðu