Fara í efni
Ársskýrsla 2025

Norðurorka rekur grunninnviði sem samfélagið treystir á allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Fyrirtækið hefur verið með vottað gæðakerfi frá árinu 2009 og er það tekið reglulega út af óháðum aðila. Frá upphafi hefur Vottun hf annast þessar úttektir en á árinu 2025 var tekin sú ákvörðun að skipta um ytri úttektaraðila. Endurnýjun sem þessi er talin góð stjórnsýsluvenja sem skapar tækifæri til nýrrar sýnar og ferskra athugasemda sem styðja við áframhaldandi umbætur. Vottun hf. er hér með þakkað fyrir trausta og faglega þjónustu í gegnum árin og þeirra mikilvæga framlag til þróunar á gæðakerfi fyrirtækisins. Norðurorka hefur nú samið við BSI um að annast ytri úttektir á gæðakerfinu með það að markmiði að efla gæðastjórnun enn frekar og tryggja að kerfið haldi áfram að þróast í takt við breyttar kröfur og væntingar.  

Innra eftirlit með verkferlum fyrirtækisins er mjög virkt og árið 2025 voru 19 af 50 verklagsreglum yfirfarnar í innri úttektum og uppfærðar eftir þörfum, ásamt fylgjandi skjölum. Heilbrigðiseftirlitið hefur á ári hverju tekið sýni til örverugreiningar úr öllum vatnsveitum fyrirtækisins auk þess sem tekin eru sýni til heildarefnagreiningar. Reglulegt vinnslueftirlit fer fram í hitaveitunni þar sem m.a. er mælt efnainnihald vatnsins og lagt mat á heildarafkastagetu vinnslusvæðanna. Árlega eru gerðar spennugæðamælingar í rafveitu til að fylgjast með því að kröfur til spennugæða, sem fram koma í reglugerðum og stöðlum, séu uppfylltar. Í fráveitunni eru framkvæmdar reglulegar sýnatökur meðfram strandlengju Akureyrar, fylgst er með álagi í kringum skilgreind þynningarsvæði í Eyjafirði auk þess sem tekin eru sýni í hreinsistöð fráveitu bæði fyrir og eftir síun fráveituvatnsins.

Til gamans má geta þess að í haust dvaldi vísindafólk frá einni fremstu hafrannsóknarstofnun heims, Geomar Research Institute í Kiel í Þýskalandi, hér á Akureyri. Tilgangur heimsóknarinnar var að vinna að umfangsmikilli rannsókn á áhrifum mengunar af mannavöldum á vistkerfi og samfélög á lands- og hafsvæði Evrópu á norðurslóðum. Norðurorka bauð vísindafólkinu, Christu og Dennis, aðstöðu í hreinsistöð fráveitu til að vinna rannsóknina hér á landi. Tekin voru sýni úr sjó á nokkrum stöðum í Eyjafirði og í framhaldinu var mismunandi mengunarefnum bætt út í sýnin til að sjá hvernig lífríkið í sýnunum myndi bregðast við. Meðal efna sem prófuð voru voru plastefni, þrávirk lífræn mengunarefni, þungamálmar, fráveita úr farþegaskipi og fráveita Akureyrar eftir hreinsun. 
Það er Norðurorku sönn ánægja að geta orðið að liði í verkefni sem þessu en samstarfið gerir rannsóknarteyminu kleift að vinna á vettvangi við raunverulegar aðstæður og stuðlar að auknum skilningi á því hvernig mengun og loftslagsbreytingar hafa áhrif á hafsvæði við norðurströnd Íslands.

Frá árinu 2011 hefur Norðurorka rekið innra eftirlitskerfi með sölumælum sínum sem hluta af gæðakerfi fyrirtækisins. Árlega er framkvæmd ytri úttekt á kerfinu til að sannreyna að kröfum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sé fullnægt. Þessi þáttur gæðakerfisins snýr að því að tryggja réttar mælingar og að mælaskipti fari fram á réttum tíma.

Gott gæðakerfi ýtir undir að allt starfsfólk Norðurorku taki eftir og leiti að tækifærum til að bæta verkferla, auka öryggi og tryggja sem best afhendingaröryggi allra veitna. Rekstur gæðakerfisins er þannig verkefni sem snertir alla þætti fyrirtækisins og því er þátttaka starfsfólks og skuldbinding stjórnenda algjört lykilatriði. Gott gæðakerfi snýst nefnilega ekki einungis um að gera vel heldur snýst það um að gera sífellt betur.

 

Til baka á forsíðu