Á árinu 2025 störfuðu 106 einstaklingar hjá Norðurorku í 81,5 stöðugildum, 70 karlar og 36 konur.
Á fjármálasviði störfuðu sex konur, á framkvæmdasviði sem jafnframt er fjölmennasta sviðið störfuðu 35 einstaklingar yfir árið og þar af fimm konur, á skrifstofu forstjóra störfuðu fjórir einstaklingar og þar af einn karl, á veitu- og tæknisviði 8 þar af ein kona, á þjónustusviði 12 og þar af fimm karlar.
Í sumarafleysingar og tímabundin verkefni komu 13 einstaklingar til starfa, þrjár konur og tíu karlar. Þrír einstaklingar voru í tímabundnum verkefnum á framkvæmdasviði, fjórir á veitu- og tæknisviði, fimm á þjónustusviði og einn á lager. Mælaálestur var, eins og undanfarin ár, að mestu í höndum verktaka en fimm álesarar komu tímabundið inn á launaskrá meðan á verkefninu stóð.
Starfsmannavelta jókst úr 12% í 14%. Alls létu 12 einstaklingar af störfum hjá Norðurorku árið 2025 en 13 hófu störf.
Á árinu voru veittar tvær starfsaldursviðurkenningar: Guðmann Þór Böðvarsson fékk viðurkenningu fyrir 10 ára starf og Helga S. Steingrímsdóttir fyrir hvorki meira né minna en 40 ára starf.
Starfsmannafundir og -samtöl
Alls voru haldnir sjö starfsmannafundir á árinu. Fundirnir eru alla jafna haldnir í matsal fyrirtækisins en jafnframt er boðið upp á þátttöku starfsfólks í gegnum Teams fyrir þau sem eru í fjarvinnu á fundardegi.
Lagt er upp með að starfsmannasamtöl fari fram tvisvar á ári, í mars og október. Starfsmannasamtöl sem fóru fram í mars voru með hefðbundnu sniði og starfsfólk hitti sinn næsta stjórnanda og ræddi líðan í starfi og starfsþróun. Markmið starfsþróunarsamtala er að skýra hlutverk starfsfólks og setja markmið fyrir komandi mánuði sem eru til þess fallin að efla bæði starfsfólk og stjórnendur í starfi. Í október fóru af stað hefðbundin starfsmannasamtöl með þeirri undantekningu að tveimur stjórnendum var boðið að starfsmaður mannauðssviðs tæki þeirra samtöl vegna skipulagsbreytinga og anna. Þá var fagmennska sérstakt áhersluatriði auk þess sem líðan í starfi er rædd í öllum samtölum. Með fagmennsku er átt við að starfsfólk þekki hvað það er að starfa af fagmennsku hjá Norðurorku. Það þekki þær væntingar sem gerðar séu til þeirra og að stjórnandi og starfsmaður ræði sameiginleg markmið næstu mánaða.
Ráðstefnur og kynningar
Forvarnaráðstefna VÍS, sem haldin er árlega, fór fram þann 20. mars. Á ráðstefnunni var fjallað um öryggismál og forvarnir fyrirtækja og stofnana frá fjölbreyttum sjónarhornum, þar sem vel valdir sérfræðingar og stjórnendur deildu reynslu sinni og bestu starfsháttum með gestum. Norðurorka átti þrjá fulltrúa á ráðstefnunni sem fylgdust með framsöguerindum og umræðum um nýjustu strauma í öryggis- og forvarnastarfi.
Í maí tóku fagstjóri rafveitu og tveir rafvirkjar Norðurorku þátt í Elfack í Gautaborg. Um er að ræða mjög stóran viðburð, sem spannar fjóra daga. Þar fer fram vörusýning, þar sem fjöldinn allur af fyrirtækjum sýnir vörur sínar og allt það nýjasta í rafmagnsmálum, auk ráðstefnu með upp undir 30 erindi á dag.
Samorkuþing var haldið í Hofi á Akureyri dagana 22.–23. maí. Þingið, sem fram fer á þriggja ára fresti, er stærsti vettvangur orku- og veitugeirans til að koma saman og ræða þau málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Yfir 20 áhugaverðir fyrirlestrar voru haldnir af fyrirlesurum frá aðildarfélögum Samorku, meðal annars um framtíðarsýn í þjónustu við samfélagið, bætta nýtingu jarðhita og nýja strauma í raforkuframleiðslu, svo fátt eitt sé nefnt. Eftir fyrri dag ráðstefnunnar kom samstarfsfólk og kollegar úr orkugeiranum saman í íþróttahöllinni, naut góðs félagsskapar og fögnuðu sameiginlegum árangri, öflugu samstarfi og þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur á undanförnum árum.
Norræna fráveituráðstefnan Nordiwa fór fram í Gautaborg dagana 23.-25. september og Norðurorka átti þar einn fulltrúa. Viðburðurinn er stór þar sem fram fer vörusýning og fjöldi erinda fluttur um allt það áhugaverðasta í fráveitumálum.
Mannauðsdagurinn var haldinn í Hörpu 3. október og Norðurorka sendi þrjá starfsmenn til þátttöku. Um er að ræða stærsta viðburð stjórnunar og mannauðsmála á Íslandi.


Þann 6. nóvember fór hin árlega kynnisferð starfsfólks fram en slíkar ferðir eru liður í að auka þekkingu starfsfólks á starfsemi fyrirtækisins. Rúmlega fjörutíu starfsmenn fóru í ferðina sem m.a. var heitið í Glerárvirkjun I, að dreifistöðinni við Sundlaug Akureyrar, niður á höfn að nýrri neyðarútrás fráveitu, í hreinsistöð fráveitu í Sandgerðisbót og á Þelamörk.
Í desember hélt Samorka jólafund sinn og átti Norðurorka sjö fulltrúa þar. Fundurinn var að venju helgaður innra starfi Samorku og meðal viðburða voru kynning á nýrri handbók og nýrri nálgun í öryggismálum, fyrirlestur um öryggi orkuinnviða og umræður við orku-, umhverfis og loftslagsráðherra.
Endurmenntun
Árlegar fræðsluvikur Norðurorku fóru fram í janúar í áttunda sinn. Þær spönnuðu tvær vinnuvikur frá 12. til 23. janúar. Þegar allt er talið voru haldin 52 mismunandi námskeið, til dæmis í markmiðasetningu, réttri líkamsbeitingu, námskeið um betri svefn, um árangursríka teymisvinnu, þó nokkur námskeið í ýmsum Microsoft forritum, námskeið um lífeyrisréttindi á mannamáli, námskeið um streitustjórnun, námskeið um ofbeldi gegn starfsfólki, námskeið um netöryggi og gervigreind og margt fleira.
Í desember útskrifaðist einn rafvirki Norðurorku sem rafvirkjameistari og á árinu 2025 stunduðu þrír rafvirkjar nám í rafveituvirkjun sem þeir luku í upphafi árs 2026. Um er að ræða sérhæfingu ofan á hefðbundið rafvirkjanám sem veitir aukna faglega færni og víðtækari réttindi.
Jafnréttismál
Jafnréttisráð var á sínu fjórða starfsári og fundaði reglulega árið 2025. Ráðið er skipað fimm sjálfboðaliðum, tveimur konum og þremur körlum úr hópi starfsfólks til viðbótar við mannauðsstjóra.
Eitt af hlutverkum ráðsins er að stuðla að fræðslu um jafnréttismál og fjölbreytileika og framlag ráðsins til fræðsluvikna á árinu voru fjögur námskeið sem allt starfsfólk sat. Það fyrsta var námskeið um jákvæða vinnustaðamenningu sem fjallaði um hvernig hægt er að byggja upp og viðhalda jákvæðri vinnustaðamenningu með einföldum aðferðum. Námskeiðið féll almennt í góðan jarðveg. Einnig voru haldin námskeið um meðvirkni á vinnustað annars vegar og hvernig setja eigi fólki mörk hins vegar þar sem leiðbeinendurnir fór yfir hvernig er hægt að minnka meðvirkni og neikvæðar tilfinningar henni tengt á vinnustað auk þess hvernig eigi að þekkja og virða bæði sín mörk sem og annarra. Loks var haldið námskeið um jákvæðni og húmor í samskiptum þar sem fjallað var um rannsóknir sem hafa sýnt fram á að húmor í hversdagslegum samskiptum getur hjálpað fólki að takast betur á við ýmsar aðstæður, leysa úr áskorunum og draga úr streitu. Hann geti einnig hjálpað okkur að sjá jákvæðari hliðar lífsins og aukið gleði í daglegu lífi, og með því að rækta húmor og vellíðan geti fólk haft jákvæð áhrif á eigin líðan og heilsu til lengri tíma.
Skoðun á kynjaskiptingu í starfseiningunum leiðir í ljós að þar urðu litlar breytingar milli ára. Konur eru 33% starfsfólks fyrirtækisins og karlar 66% en til samanburðar voru konur 35% starfsfólks árið 2024 og karlar 65%. Norðurorka fékk viðurkenningu jafnvægisvogarinnar fjórða árið í röð.
Kynbundinn launamunur
Launagreining ársins 2025 var unnin í samstarfi við félagið Ráð, sem sérhæfir sig í ráðgjöf og fræðslu í tengslum við stjórnunarkerfi og stefnumótun. Notast var við gögn úr launakeyrslu janúar. Heildartölur fyrir árið sýna að kynbundinn launamunur mældist 0% þegar eingöngu var horft á grunnlaun.
Launagreining sem mældi mun á reglulegum launum sýndi hins vegar niðurstöðu upp á 1,1% launamun körlum í vil en árið áður hallaði á karla sem nam 0,6%.
Launamunurinn telst afar lítill og er vel innan við sett markmið Norðurorku frá í mars 2022 um að kynbundinn launamunur fastra launa skuli vera innan við 2,5%.
Samgöngu- og heilsueflingarstyrkir
Fyrirtækið hefur, með því að greiða samgöngustyrk í samræmi við skattmat ríkisskattstjóra á hverju ári, hvatt starfsfólk til þess að ganga eða hjóla til vinnu . Á árinu 2025 skráðu 33 einstaklingar vistvænar ferðir til og frá vinnu og þar af fengu 28 þeirra greiddan samgöngustyrk. Flestir fengu greiddan styrk fyrir júní en flestir dagar voru skráðir í september eða alls 379. Í desember voru skráðar fæstar ferðir, ekki nema 214. Samtals skráði starfsfólk 3.771 dag allt árið, sem er lítilleg fækkun frá árinu áður. Í heildina greiddi Norðurorka samgöngustyrk fyrir 204 mánuði árið 2025, sem er fjölgun um 8 frá árinu áður. Til samanburðar var greiddur samgöngustyrkur fyrir 196 mánuði vegna ársins 2024, 228 árið 2023, 244 árið 2022, 196 árið 2021 og 184 árið 2020.
45 einstaklingar nýttu heilsueflingarstyrk frá Norðurorku, sem er fækkun um einn frá árinu 2024.

