Fara í efni
Ársskýrsla 2025

Á árinu 2025 var lögð umfangsmikil vinna í rekstur, viðhald og þróun skólp- og regnvatnskerfa sveitarfélagsins með sérstakri áherslu á öryggi, áreiðanleika og framtíðarforsendur kerfanna. Auk þess var ráðist í fjölmörg verkefni í samstarfi við innri og ytri hagsmunaaðila.

Eftir óvenjumikinn úrkomuatburð 5. febrúar 2025 var hafið markvisst samstarf við Akureyrarbæ um mótvægisaðgerðir vegna flóðahættu. Í kjölfarið var unnið að hreinsun skurða, athugun og viðhaldi útrása og lagnaleiða. 

Verkefni sem snertu útrásir við Torfunef og austan við Drottningarbraut gengu samkvæmt áætlun þrátt fyrir áskoranir vegna sjávarfalla og takmarkaðs verktíma og á árinu var hafinn undibúningur að endurnýjun á um 90 m kafla regnvatnslagnar í Lækjargili sem farið verður í á árinu 2026. 

Á árinu voru um 30 niðurföll endurnýjuð í reglubundinni úttekt fyrirtækisins ásamt endurnýjun á stofnlögn við Tjarnarlund. Framkvæmdum við Krossanes og Krossanesbraut var einnig lokið en þar voru gerðar breytingar á legu skólp- og regnvatnslagna vegna nýbygginga. Lögð var ný skólplögn frá Sjafnarnesi en þar var um að ræða tengingu götunnar Sjafnarness við fráveitukerfið en framkvæmdin krafðist leyfis og eftirlits Landsnets vegna háspennulínu á svæðinu.

Í hreinsistöð voru framkvæmdar nokkrar öryggis- og aðstöðubætur, meðal annars uppsetning háþrýstibúnaðar til hreinsunar og breytingar á pöllum og neyðarstigum til að auka öryggi starfsmanna.

Á árinu bárust fyrirspurnir frá Hörgársveit og SAk um mögulegar yfirtökur veitukerfa. Í tengslum við fyrirspurnina frá SAk voru framkvæmdar ítarlegar skráningar, vettvangsathuganir og unnin skýrsla í samstarfi við COWI sem er grundvöllur að arðsemismati á veitunum. Varðandi hugsanlega yfirtöku á fráveitu á Hjalteyri var farið í vettvangskönnun og gagnaöflun en þessum verkefnum verður fram haldið á árinu 2026.

NO hóf fjarvöktun á völdum brunnum í samstarfi við Vatnsgæði ehf. í þeim tilgangi að fylgjast með rennsli og meta framtíðarþarfir varðandi endurnýjun kerfa. Auk þess hófst markviss vöktun Glerár þar sem tekin voru sýni til að greina mögulegar mengunaruppsprettur, og verður því starfi fram haldið á árinu 2026.

Jafnframt vann deildin ásamt ráðgjöfum að hönnun nokkurra verkefna, þar á meðal við Hótel Kjarnalund, Fésta stúdentagarða og Hofsbót, þar sem hannaðar verða lausnir fyrir nýjar tengingar við frárennsliskerfi. Þá lauk forverkefni með Akureyrarbæ og COWI um grænar lausnir í Gránufélagsgötu, en framkvæmdum hefur verið frestað til ársins 2027.

Til baka á forsíðu