Fara í efni
Ársskýrsla 2025

Á undanförnum árum hefur verið lögð aukin áhersla á að fyrirtækið einbeiti sér að kjarnastarfsemi sinni. Einn liður í því er að draga Norðurorku út úr dóttur- og hlutdeildarfélögum félagsins sem hafa lítinn eða engan skyldleika við veitustarfsemi. Á árinu 2025 seldi Norðurorka hlut sinn í Skógarböðum ehf. og í Tengi ehf. en einnig var Vistorka lögð niður. 

Samorka

Norðurorka er aðili að SAMORKU, samtökum orku- og veitufyrirtækja í landinu og í gegnum þau aðili að Samtökum atvinnulífsins. Samorkaer málsvari orku- og veitufyrirtækja og beitir sér fyrir farsælli þróun í orkuog veitumálum á Íslandi. Íráðum og nefndum Samorku situr fjölmargt starfsfólk þeirra fyrirtækja sem eiga aðild að samtökunum, þar á meðal Norðurorku. Á meðal meginverkefna Samorku eru innri málefni svo sem kynningar-, fræðslu- og félagsstarfsemi aðildarfyrirtækjanna.

Fallorka ehf.

Fallorka ehf. er dótturfélag Norðurorku og annast framleiðslu á raforku. Félagið starfrækir fjórar vatnsaflsvirkjanir við Eyjafjörð, tvær í Glerá og tvær í Djúpadalsá.

Árið 2025 nam orkuframleiðsla félagsins tæpum 45,5 GWst sem er um 15% aukning frá fyrra ári. Aukninguna má rekja til hagstæðs vatnsbúskapar á árinu auk þess sem lítil framleiðsluvél í Djúpadal, sem tekin var í notkun haustið 2024, hafði jákvæð áhrif á framleiðslugetu.

Á árinu 2024 var tekin sú ákvörðun að hætta smásölu rafmagns en á þeim harða samkeppnismarkaði hefur Fallorka átt undir högg að sækja undanfarin ár. Í framhaldinu var gerður samningur við Orkusöluna um að taka við þeim viðskiptavinum Fallorku sem þess óskuðu, á hagstæðum kjörum. Þetta ferli var hins vegar nokkuð þungt og það var ekki fyrr en á haustmánuðum 2025 sem leyfi fyrir þessu fékkst hjá yfirvöldum. Um áramótin 2025-26 hætti Fallorka því smásölu rafmagns og einbeitir sér nú að framleiðslu þess.

Rekstur félagsins árið 2025 sýndi viðsnúning frá fyrra ári. Hagnaður nam 84,1 milljón króna samanborið við 71,3 milljóna króna tap árið 2024. 

Skógarböð ehf.

Norðurorka átti 4,54% hlut í Skógarböðum ehf. en hlutur Norðurorku kom til vegna ákvæða í viljayfirlýsingu sem gerð var í aðdraganda þess að framkvæmdir við lagningu vatnslagna úr Vaðlaheiðargöngum til Skógarbaða hófust. Norðurorka lagði umtalsverða fjármuni og vinnu í það verkefni og er stolt af því að vera ein af grunnstoðum þess að fyrirtækið varð að veruleika. Starfsemi Skógarbaða ehf. hefur sannað sig og hefur fyrirtækið verið í miklum vexti frá opnun. Frekari uppbygging Skógarbaða er í gangi, m.a. með byggingu hótels, og því tók stjórn Norðurorku þá ákvörðun að selja eignarhlut sinn og einbeita sér enn frekar að kjarnastarfsemi félagsins.

Vistorka ehf.

Árið 2024 var tekin ákvörðun um að leggja Vistorku niður en félagið var í 100% eigu Norðurorku hf. Félagið var því lagt niður á árinu 2025 og þeim verkefnum sem talið var tilefni til að halda áfram var fundinn farvegur annars vegar hjá Akureyrarbæ og hins vegar hjá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu.

Tengir hf.

Eignarhlutur Norðurorku hf. í Tengi ehf. var rúm 38%. Fyrirtækið rekur ljósleiðaranet á Norðurlandi en starfsemi Tengis hefur vaxið mikið undanfarin ár og er tekjugrunnur félagsins sterkur. Sem fyrr segir seldi Norðurorka hf. hlut sinn í félaginu í lok ársins 2025.

NORAK ehf.

NORAK ehf. er hlutdeildarfélag Norðurorku hf. en Norðurorka hf., Rafeignir ehf. og Álag ehf. eiga fyrirtækið að jöfnu. Félagið á og rekur spennuvirki við álþynnuverksmiðju TDK í Krossanesi sem spennir niður raforku sem kemur frá aðveitustöð Landsnets við Rangárvelli. Rekstur félagsins gekk vel á árinu 2025 en reksturinn er fjárhagslega stilltur af miðað við samningstíma verksmiðjunnar til ársins 2029. 

Hrafnabjargavirkjun ehf.

Hrafnabjargavirkjun ehf. er að 48,75% hlut í eigu Norðurorku, 48,75% hlut í eigu Orkuveitu Húsavíkur og 2,5% eru í eigu Atvinnueflingar Þingeyjarsýslu. Félagið var stofnað um fýsileika þess að nýta vatnsorku í Skjálfandafljóti ofan Bárðardals.
Í Rammaáætlun III sem Alþingi samþykkti á árinu 2022 voru allir fjórir nýtingakostir félagsins settir í verndarflokk. Það er því áfram mikil óvissa um framtíð félagsins
.

Íslensk orka ehf.

Norðurorka á 36,26% hlut í félaginu Íslensk orka ehf., 32,29% eru í eigu Landsvirkjunar og 31,45% eru í eigu Orkuveitu Húsavíkur ohf. Félagið heldur utan um jarðhitaréttindi, borholur og rannsóknir á jarðhitakerfum í Öxarfirði, verkefni sem enn er í biðstöðu. Fram hafa komið aðilar sem sýna nýtingu á heita vatninu mikinn áhuga og er það mat stjórnar Íslenskrar orku að hagkvæmt sé fyrir félagið og heimafólk að markaðssetja heitt vatn af svæðinu til einhvers konar iðnaðarframleiðslu. Í landeldi gætu skapast tækifæri þar sem jarðhiti gæti nýst auk þess sem fleiri kostir geta komið til skoðunar.

Netorka hf.

Norðurorka á 7,73% hlut í Netorku hf. sem gegnir því hlutverki að vera sameiginlegt mæligagna- og uppgjörsfyrirtæki fyrir íslenskan raforkumarkað. Hlutverk Netorku hefur vaxið í ljósi aukinnar samkeppni á raforkumarkaði og þar af leiðandi fleiri aðilaskiptum.

EIMUR

EIMUR er samstarfsverkefni Umhverfis-, orku- og loftlagsráðneytisins, Landsvirkjunar, SSNE, SSNV, Norðurorku og Orkuveitu Húsavíkur um bætta nýtingu orkuauðlinda og aukna nýsköpun í orkumálum á Norðurlandi. Starf EIMS er um margt óáþreifanlegt og lýtur frekast að því að sækja tækifæri, afla styrkja til nýsköpunar og þróunar, auka þekkingu, kynningastarf og möguleika aðila á að fjölnýta auðlindastrauma orkuauðlinda sem eru á svæðinu til verðmætasköpunar.

Til baka á forsíðu