Fara í efni
Ársskýrsla 2025

Norðurorka vill vera til fyrirmyndar í öryggis-, heilsu- og vinnuumhverfismálum og ekkert verk er svo mikilvægt að það réttlæti að heilsu eða öryggi starfsfólks sé ógnað. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að útbúa og viðhalda áhættumati starfa svo tryggja megi öryggi starfsfólks og almennings v verklegrar framkvæmdir. Mikil áhersla er á að allt starfsfólk hafi greiðan aðgang að viðeigandi öryggisfatnaði og persónuhlífum og sé vel upplýst um mikilvægi á notkun þeirra.

Öryggisráð Samorku

Norðurorka á sæti í öryggisráði Samorku þar sem rædd eru ýmis mál er varða öryggi, nýjungar í þeim málum, samræmingu og hugarflug um betri lausnir. Fundað er reglulega og vinnustofur haldnar árlega. Í lok árs gaf ráðið út handbók um HOP (Human and Organisational Performance) – Öryggi, Forysta og Lærdómur, þar sem fjallað er um hvernig hugarfarsbreyting í öryggismálum getur fært okkur öruggara vinnuumhverfi með því að styðjast við fimm megin reglur: Við gerum öll mistök, að kenna um leysir ekkert, lærdómur er lykill að umbótum, aðstæður móta hegðun og viðbragð skiptir mál. Norðurorka hefur hafið innleiðingu á HOP og hefur starfsfólk fengið fyrstu kynningu á hugmyndafræðinni.

Öryggisnefnd Norðurorku

Hjá Norðurorku starfar öryggisnefnd sem skipuð er tveimur öryggisvörðum og tveimur öryggistrúnaðarmönnum. Öryggisstjóri situr einnig fundi nefndarinnar. Fundir eru haldnir að lágmarki átta sinnum yfir árið og oftar ef þurfa þykir. Nefndin fer yfir allar atvikaskráningar og fylgist með því að úrbætur séu gerðar. Einnig hefur öryggisnefndin aðkomu að ákvörðun um kaup á öryggisbúnaði, fatnaði og persónuhlífum. Nefndin ber ábyrgð á að áhættumat starfa sé unnið, rýmingaæfingar séu haldnar og að öryggismolum sem varða heilsu og öryggi, sé miðlað með reglulegum hætti til starfsfólks s.s. inni á teams síðu fyrirtækisins og á starfsmannafundum þar sem öryggismál eru alltaf fyrsta mál á dagskrá.

Öryggisfræðsla

Allt starfsfólk sem hefur störf hjá Norðurorku fær kynningu um öryggismál á fyrstu dögum nýs starfs. Þar er farið yfir almenna vinnuvernd, öryggisnefndin kynnt, mikilvægi atvikaskráningar, rýmingu húsnæðis við bruna, staðsetningu öryggisbúnaðar, öryggisfatnað og persónuhlífar, svo fátt eitt sé nefnt. Hætturnar eru mismunandi á milli starfa, t.d. hvort unnið er við rafmagn eða heitt vatn, í hæð eða í lokuðu rými og því er lögð áhersla á að kynna starfsfólki áhættumat starfa, sem unnið hefur verið af starfsfólki fyrirtækisins, strax við upphaf starfs.

Á árlegum fræðsluvikum Norðurorku er öllu starfsfólki fyrirtækisins boðið upp á ýmsa vinnutengda fræðslu þ.m.t. öryggisfræðslu. Á fræðsluvikum 2025 var meðal annars boðið upp á námskeið um öryggisvitund, áhættumat starfa, streitustjórnun, rétta líkamsbeitingu, að setja fólki mörk, ofbeldi gegn starfsfólki og meðvirkni, ásamt fjölda annarra námskeiða.

Atvikaskráningar

Starfsfólk Norðurorku skráir ábendingar, næstum slys og slys inn í ATVIK sem aðgengilegt er á innri síðu fyrirtækisins. Skráningarnar eru yfirfarnar og þeim fylgt eftir af öryggisnefnd og þeim yfirmönnum/stjórnendum sem við á, í samráði við þann sem skráir atvikið. Einnig er þar hægt að skrá ógn/áreitni/einelti sem fylgt er eftir af mannauðsstjóra og öryggisstjóra.

Lögð er áhersla á að hvetja starfsfólk til að skrá inn í ATVIK, og þá ekki síst ábendingar um næstum slys eða hættulegar aðstæður, því með yfirferð og greiningu á þeim skráningum má oft koma í veg fyrir alvarleg slys síðar. Allar skráningar eru notaðar til lærdóms og forvarna. Skráningum á ábendingum fjölgaði mikið á milli ára sem gefur stjórnendum færi á að vinna að úrbótum, með það að marki að koma í veg fyrir alvarleg slys. Hvatning til starfsfólks um betri skráningar hefur því borið árangur. Með innleiðingu á HOP er frekar horft til fyrirbyggjandi aðgerða og breytts viðhorfs til skráninga fremur en að setja viðmið um fjölda vinnuslysa.


Í lok ársins 2025 var fyrirtækið tilnefnt til forvarnarverðlauna VÍS vegna 2026 og er það viðurkenning á því góða og vandaða starfi sem unnið hefur verið í öryggismálum hjá Norðurorku á undanförnum árum. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa sterka öryggismenningu, vinna markvisst að forvörnum og slysavörnum, efla öryggisvitund og öryggishegðun starfsfólks og eru góð fyrirmynd fyrir önnur fyrirtæki í öryggismálum. 

Með góðri öryggisvitund, fræðslu og einstöku starfsfólki hefur tekist að halda slysatíðninni í lágmarki og er fyrirtækið afar stolt af því að geta boðið starfsfólki upp á öruggara starfsumhverfi í oft á tíðum krefjandi aðstæðum. 

Til baka á forsíðu