Umhverfismál eru Norðurorku afar mikilvæg. Fyrirtækið leitast við að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfið og hefur m.a. samþykkt umhverfisstefnu og skuldbundið sig til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda auk þess að minnka myndun úrgangs frá starfseminni og bæta úrgangsflokkun.
Starfsfólk Norðurorku hefur lagt sitt að mörkum í umhverfismálum undanfarin ár m.a. með því að hittast eftir vinnu einn dag að vori, ásamt fjölskyldum, til að tína rusl og fegra umhverfið í næsta nágrenni við mannvirki fyrirtækisins. Í lok maí kom saman góður hópur starfsfólks ásamt fjölskyldumeðlimum á öllum aldri, tíndi rusl í blíðskaparveðri og endaði svo daginn á pizzuveislu.
Helstu aðgerðir fyrirtækisins til að draga úr kolefnislosun vegna starfseminnar er að flokka úrgang eins og best verður við komið og að auka hlutfall vistvænna bíla við endurnýjun bílaflotans. Í lok árs voru 18 af 40 bílum Norðurorku knúnir á vistvænan hátt. Norðurorka hvetur starfsfólk sitt til vistvænna samgangna til og frá vinnu. Bæði er boðið upp á samgöngustyrk og góða aðstöðu bæði í hjólageymslu og búningsklefum. Starfsfólk getur hjólað beint inn í stóra og vel út búna hjólaaðstöðu þar sem boðið er upp á að hlaða rafmagnshjól og viðgerðaaðstöðu. Hjólreiðafólk getur því farið beint á hlý og snjólaus hjólin eftir vinnu, allt árið um kring. Í búningsherbergjum er allt starfsfólk með læsta skápa og góða sturtuaðstöðu sem upplagt er að nýta fyrir vinnudaginn, eftir góða hjóla- eða gönguferð. Starfsfólk hefur tekið vel í þessa hvatningu og árið 2025 má áætla að vistvænar samgöngur starfsfólks hafi sparað um 3,8 tonn CO2 losunar út í andrúmsloftið eða sem samsvarar 71% kolefnisjöfnun vegna allra flugferða á vegum Norðurorku árið 2025.
Auk áherslu á að finna leiðir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda vinnur fyrirtækið einnig að bindingu kolefnis. Í gegnum árin hefur Norðurorka gróðursett tré og í upphafi ársins 2025 átti fyrirtækið um 60 hektara af skógi sem bindur koltvísýring. Ekki voru gróðursett ný tré á árinu 2025 en Norðurorka hefur metnaðarfull áform um áframhaldandi skógrækt næstu ár og til stendur að halda gróðursetningu áfram á Hjalteyri og að Reykjum í Fnjóskadal.
Til viðbótar við skógræktina hefur Norðurorka, frá árinu 2014, unnið gegn gróðurhúsaáhrifum með því að safna metangasi úr gömlu sorphaugunum ofan við Akureyri. Þar sem metan er margfalt öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur næst mikil minnkun gróðurhúsaáhrifa með því að koma í veg fyrir að metan sleppi út í andrúmsloftið. Árið 2025 vann Norðurorka 155 þúsund NM3 af metan og batt þannig rúm 2.730 tonn af koltvísýringi.
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá kolefnisspor Norðurorku frá og með árinu 2021. Ofan við núlllínuna er talin upp losun vegna starfsemi fyrirtækisins en neðan við núlllínuna sést binding kolefnis. Árið 2025 losaði Norðurorka 293 tonn kolefnis en batt 3.101 tonn. Fyrirtækið batt því mun meira magn CO2 en það losaði og er heildarkolefnisspor ársins 2025 því -2.808 tonn CO2 ígildi. Sjá má að binding CO2 er minni árið 2025 en undangengin ár og skýrist það af minna streymi metangass frá sorphaugunum, sem er eðlileg þróun við slíka söfnun.
Rekstur hreinsistöðvar fráveitu frá árinu 2020 er stórt jákvætt skref í umhverfismálum fyrir allt samfélagið við Eyjafjörð. Hreinsistöðin þjónar rúmlega 20.000 manns, á Akureyri og hluta Hörgársveitar ásamt fjölda fyrirtækja. Í hreinsistöðinni er öllu fráveituvatninu veitt í gegnum þrepasíu með 3 mm gatastærð. Síuðu fráveituvatninu er síðan veitt í gegnum fráveitulögn út í sjó, sem liggur á 40 m dýpi og nær 400 m út frá landi. Árið 2025 hreinsaði stöðin rúm 42,7 tonn af rusli úr fráveitunni, sem annars hefðu borist út í sjó.