Fara í efni

Á starfsárinu 2023 voru haldnir 12 stjórnarfundir, auk eigendafundar. Stjórn Norðurorku skipa auk mín Geir Kristinn Aðalsteinsson varaformaður, Hilda Jana Gísladóttir ritari, Sif Jóhannesar Ástudóttir og Þórhallur Jónsson. Áheyrnarfulltrúi minni hluthafa er Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps.

Rekstur Norðurorku hefur gengið vel undanfarin ár en þó reyndist árið 2023 dálítið erfitt, meðal annars vegna verðbólgu. Á verðbólgutímum undanfarinna ára hafa verðskrár okkar ekki haldið í við verðlag. Stjórn samþykkti á árinu 2022 að hægt væri að gera breytingar á verðskrá allt að fjórum sinnum á ári í stað einu sinni eins og hafði verið. Á árinu 2023 var verðskrá hækkuð tvisvar, fyrst í upphafi árs og aftur 1. ágúst en þannig tókst að láta verðskrár veitna fylgja verðlagsþróun betur en áður.

Á árinu var farið yfir ráðgefandi erindi frá lögfræðingi sem í framhaldinu var flutt fyrir bæjarstjórn. Það sem þar vakti helst athygli mína voru meða annars tillögur sem snúa að eigendastefnu fyrirtækis sem er vettvangur eigenda til að koma stefnu sinni á framfæri við stjórn sem framfylgir svo þeirri stefnu. Í dag er ekki til eigendastefna fyrir Norðurorku og því liggur fyrir að allir eigendur muni vinna að því að ljúka við gerð hennar. Einnig þótti mér athyglisverð umræða um skipun stjórnar sem í dag er eingöngu skipuð pólitískum fulltrúum úr hópi eigenda. Að mínu mati er þarft að ræða hvort við viljum stíga það skref að auglýsa eftir tveimur ópólitískum fulltrúum. Það getur verið áskorun fyrir stjórnarfólk að sitja beggja vegna borðs en þegar setið er við stjórnarborðið í Norðurorku er mikilvægt að hafa alltaf hag Norðurorku að leiðarljósi. Ég tel að með ofangreindri breytingu fáum við tækifæri til að ná fram breiðari sjónarmiðum sem vonandi skila sér í betri ákvörðunum.

Í apríl 2023 var lífdísilframleiðsla Orkeyjar auglýst til sölu. Vaxandi áhugi var fyrir rekstrinum og eftirspurn eftir lífdísil hefur verið að aukast, bæði sem eldsneyti og í aðra vinnslu. Stjórn Norðurorku taldi því tímabært að hleypa öðrum aðilum að sem áfram myndu þróa starfssemi Orkeyjar og auka veg fyrirtækisins enda er lífdísilframleiðsla ekki hluti af kjarnastarfsemi Norðurorku. Eitt tilboð barst sem uppfyllti allar þær kröfur sem settar voru fram og eignaðist Gefn efh. Orkey að fullu 1. júlí 2023. Gefn stefnir á áframhaldandi rekstur Orkeyjar á Akureyri og er það von Norðurorku og trú að Orkey dafni vel með nýjum eigendum.

Norðurorka keypti jörðina Arnarnes á árinu 2023 ásamt jarðhitaréttindum sem jörðinni fylgja. Það er yfirlýst stefna félagsins að eignast jarðhitaréttindi á svæðinu og hafa forræði yfir þeim. Norðurorka mun áfram eiga jörðina Arnarnes að mestu en hefur nú selt húseignir sem henni fylgdu.

Áskoranir í metanframleiðslu hafa varla farið framhjá neinum. Í dag er Norðurorka að flytja metan frá Reykjavík til Akureyrar með tilheyrandi kostnaði og umhverfisáhrifum til að anna eftirspurn. Auðvitað er þetta stórt mál fyrir Akureyrarbæ og Norðurorku þar sem fjárfest hefur verið í metanknúnum bifreiðum. Áform um uppbyggingu líforkuvers á svæðinu eru okkur tilefni og hvatning til þess að viðhalda þeim markaði sem byggst hefur upp fyrir metan sem eldsneyti í samgöngum. Flutningur metans norður til að svara þeirri eftirspurn sem metanframleiðsla Norðurorku annar ekki er nú í föstum skorðum og framboð þannig tryggt til allra notenda á Akureyri.

Norðurorka hf. er sterkt félag og býr yfir miklum möguleikum til þess að styðja við og fjölga tækifærum í samfélagi okkar með ýmsum hætti og það höfum við vissulega gert í gegnum tíðina með góðum árangri. Við megum hins vegar ekki fjarlægjast kjarnarekstur Norðurorku, sem er veitustarfsemi og mikilvægt er að muna að þar liggur okkar megin ábyrgð. Veitustarfsemin kallar á fulla athygli stjórnar og stjórnenda ekki síst nú þegar áfram eru „skaflar“ framundan.

Í gegnum tíðina hefur Norðurorku verið falið að sjá um ýmis verkefni sem fyrirtækið á ekki endilega að standa í. Norðurorka er veitufyrirtæki og fyrirtækið á að geta einbeitt sér að þeirri starfsemi. Stjórn þarf að tryggja að svo geti orðið. Þetta verður stjórn að hafa að leiðarljósi þegar verið er að fara í gegnum þau verkefni sem eru á höndum Norðurorku.

Norðurorka hf. er framúrskarandi fyrirtæki árið 2023 og er á meðal þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði greiningar Creditinfo á framúrskarandi fyrirtækjum. Þessi viðurkenning, sem fyrirtækið hefur hlotið á hverju ári í ellefu ár, er fyrst og fremst viðurkenning á því að allt starfsfólk Norðurorku leggur sig fram um að skila góðu verki á hverjum degi, allt árið um kring. 

Norðurorka hf. hlaut einnig viðurkenningu jafnvægisvogarinnar á árinu. Tilgangur Jafnvægisvogarinnar er m.a. sá að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar hjá fyrirtækjum í íslensku viðskiptalífi og að varpa ljósi á þau fyrirtæki sem náð hafa markmiðum Jafnvægisvogarinnar um virka jafnréttisstefnu og jafnt kynjahlutfall í framkvæmdastjórn. Við erum stolt af þeim árangri sem Norðurorka hefur náð.

Ég vil að lokum þakka forstjóra, starfsfólki Norðurorku ásamt félögum mínum í stjórninni fyrir gott og farsælt samstarf á árinu. Þá vil ég einnig færa hluthöfum bestu þakkir fyrir ánægjulega samvinnu á árinu. 

Hlynur Jóhannsson
Stjórnarformaður