Fara í efni

Um árabil hefur ákveðin aðferðafræði verið notuð til að ákvarða grunn til útreikninga á breytingu á verðskrám komandi árs. Annars vegar er ársreikningur liðins árs brotinn niður og vægi rekstrarkostnaðar tengdur vísitölum. Með þessu sjást áhrif vísitölubreytinga á rekstrarkostnað Norðurorku. Hins vegar er horft til verðbólguspár Seðlabanka Íslands fyrir komandi ár. Vísitala Norðurorku og verðbólguspá Seðlabankans fyrir 2023, vegnar saman til helminga voru 8,1% í lok árs 2022 og það var grunnur fjárhagsáætlunar 2023. Einnig var horft til rekstrar og áhrifa stórra verkefna Norðurorku. 

Þann 1. janúar 2023 tóku í gildi breytingar á verðskrám Norðurorku. Á grundvelli greiningar á rekstrarkostnaði og vísitölum og að teknu tilliti til fjárfestingaáætlana, var ákveðið að hækka verðskrá hitaveitu um 14%, verðskrá rafveitu var hækkuð um 11% auk þess sem verðskrár vatnsveitu og fráveitu hækkuðu um 8,1%. Því ber að halda til haga að hitaveita, fráveita og rafveita Norðurorku stóðust ekki virðisrýrnunarpróf sem í mjög einfölduðu máli þýðir að tekjur standa ekki undir fjárfestingum.

Þann 1. ágúst 2023 var aftur gerð breyting á verðskrám Norðurorku en þá hækkuðu verðskrár allra veitna um 4,9%. Þá lá fyrir að hækkanir þær sem gerðar höfðu verið um áramót myndu ekki duga til að mæta verðlagsþróun. Miklar framkvæmdir voru þá og eru framundan í öllum veitum fyrirtækisins og ljóst er að verðskráin mun áfram litast af þeim.

Það er mikilvægt að við munum að auðlindir okkar í heitu og köldu vatni eru ekki óþrjótandi. Mikið fjármagn þarf til að afla og vinna nýjar auðlindir og til uppbyggingar á kerfum til að auka flutningsgetu þeirra. Sóun á heitu vatni og neysluvatni eykur og hraðar fjárfestingaþörf í innviðum sem aftur kallar á hækkanir á verðskrá félagsins. Því er mikilvægt að halda til haga þeim tækifærum sem felast í því að fara vel með og forðast sóun á auðlindunum.

 

Til baka - Yfirlit yfir starfsemina