Fara í efni


Umhverfismál eru Norðurorku afar mikilvæg og hefur fyrirtækið samþykkt umhverfisstefnu og skuldbundið sig til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda auk þess að minnka myndun úrgangs frá starfseminni.

Til að undirstrika áherslu á virðingu við náttúruna hefur starfsfólk Norðurorku lagt sitt að mörkum í umhverfismálum undanfarin ár m.a. með því að hittast eftir vinnu, einn dag að vori, ásamt fjölskyldum til að tína rusl og fegra umhverfið í næsta nágrenni við höfuðstöðvar fyrirtækisins á Rangárvöllum. Í lok maí komu saman 32 einstaklingar, stórir og smáir, til að tína rusl og njóta útiverunnar. Dagurinn endaði svo á pizzuveislu.

Helsta aðgerð fyrirtækisins til að draga úr kolefnislosun vegna starfseminnar er áhersla á að kanna ávallt möguleikann á vistvænum bílum við endurnýjun bílaflotans. Í lok árs voru 18 af 38 bílum Norðurorku knúnir á vistvænan hátt og fer þeim fjölgandi.

Auk áherslu á að finna leiðir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda vinnur fyrirtækið einnig í bindingu kolefnis. Í gegnum árin hefur Norðurorka gróðursett tré og í upphafi ársins 2023 átti fyrirtækið um 60 hektara af skógi sem binda koltvísýring. Á árinu voru gróðursettar 12.500 plöntur á Reykjum í Fnjóskadal. Norðurorka hefur metnaðarfull áform um áframhaldandi skógrækt næstu ár og til stendur að halda gróðursetningu áfram á Hjalteyri og á Reykjum í Fnjóskadal.

Til viðbótar við skógræktina hefur Norðurorka, frá árinu 2014, unnið gegn gróðurhúsaáhrifum með því að framleiða metangas úr gömlu sorphaugunum ofan við Akureyri. Þar sem metan er margfalt öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur næst mikil minnkun gróðurhúsaáhrifa með því að koma í veg fyrir að metanið sleppi út í andrúmsloftið. Árið 2023 vann Norðurorka 225 þúsund rúmmetra af metani og batt þannig tæp 4 þúsund tonn af koltvísýringi.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá kolefnisspor Norðurorku frá og með árinu 2019. Ofan við núll línuna er talin upp losun vegna starfsemi fyrirtækisins en neðan við núll línuna sést binding kolefnis. Árið 2023 losaði Norðurorka 360 tonn kolefnis en batt 4.346 tonn. Fyrirtækið batt því mun meira magn CO2 en það losaði og er heildarkolefnisspor ársins 2023 þá -3986 tonn CO2 ígildi.

 

Ársskýrsla Norðurorku

 

Rekstur hreinsistöðvar fráveitu frá árinu 2020 var stórt jákvætt skref í umhverfismálum fyrir allt samfélagið við Eyjafjörð. Í hreinsistöðinni eru allir hlutir í fráveituvatninu síaðir frá með 3 mm þrepasíun áður en fráveituvatni er veitt út í fjörðinn. Árið 2023 hreinsaði stöðin tæp 40 tonn af rusli úr fráveitunni og sýna mælingar að áhrif hreinsunarinnar séu mjög jákvæð.

 

Til baka - Yfirlit yfir starfsemina