Fara í efni


Norðurorka hóf GPS mælingar á lögnum og strengjum í kringum aldamótin 2000 til þess að hafa góða sýn yfir lagnakerfið á Akureyri og nágrenni. Í gegnum árin hefur Norðurorka aðeins haft eitt GPS tæki í notkun sem starfsfólk teiknistofu notar við mælingar en á árinu 2022 var öðru GPS tæki bætt við til þess að anna mestu álagspunktum í starfsemi Norðurorku. 

Allar nýframkvæmdir eru GPS-mældar, af verktökum eða starfsfólki Norðurorku, og upplýsingum bætt inn í teiknikerfið. Þannig er tryggt að haldið sé utan um raunstaðsetningu nýrra lagna í gagnagrunni sem heldur áfram að stækka. Það er gaman að segja frá því að á árinu 2023 fór teiknistofa Norðurorku í 844 mælingar á starfssvæðinu þar sem mældir voru 38.400 metrar af lögnum/strengjum Norðurorku. 

Norðurorka hefur á  undanförnum árum byggt upp öflugan gagnagrunn með upplýsingum um staðsetningu lagna/strengja, dýpt þeirra, stærð og aldur. Á árinu 2023 hefur kortasjáin verið í stöðugri þróun og vexti og hefur reynst öflugt tól fyrir starfsfólk og ekki síður viðskiptavini Norðurorku.

Í kortasjá Norðurorku, www.map.is/no, sem opin er öllum má sjá grunnupplýsingar um lagnir. Starfsfólk teiknistofu veitir viðskiptavinum upplýsingar um nákvæmari staðsetningu lagna/strengja.

 

Til baka - Yfirlit yfir starfsemina