Fara í efni


Norðurorka hóf framleiðslu metangass úr gömlu ruslahaugunum í Glerárdal fyrir ofan Akureyri í ágústlok árið 2014. Til að byrja með var salan nokkuð í takt við væntingar en vöxturinn hefur verið minni en áætlað var í upphafi. Salan á árinu 2023 var 225.497 Nm3 og minnkaði um 9% frá árinu á undan.

Á árinu 2023 var flutt gas frá Sorpu í Álfsnesi til Akureyrar og létti það nokkuð á framleiðslunni frá Glerárdal sem ekki annar lengur eftirspurn á álagstímum. Fluttir voru um 20.000 Nm3 til Akureyrar á árinu 2023.

Ljóst er að framleðslugeta haugsins hefur náð hámarki og kemur til með að minnka jafnt og þétt næstu ár. Hlutverk Norðurorku er að safna því metani sem myndast á gömlu ruslahaugunum í Glerárdal og vinna úr því eldsneyti. Það er verkefni samfélagsins að finna lausnir til frekari framleiðslu á metangasi og hefur Norðurorka bent á mikilvægi þess að hefja þá vinnu.

Hámarksframleiðslugeta haugsins í Glerárdal er talsvert minni en ráðgert var í upphafi verkefnisins. Nú þegar við stöndum frammi fyrir þessari áskorun er gott að rifja upp að frá upphafi hefur Norðurorka safnað, hreinsað og þjappað rúmlega 1,6 milljón Nm3 af metangasi. Þetta hefur sparað innflutning jafn margra lítra af jarðefnaeldsneyti og sparað losun á því sem nemur u.þ.b. 28 þúsund tonnum af koltvísýringi. Verkefnið hefur því sannarlega skilað samfélaginu ávinningi sem við getum verið stolt af.

 

Ársskýrsla Norðurorku

 

 

Ársskýrsla Norðurorku

 

Til baka - Yfirlit yfir starfsemina