Fara í efni

Gæðamál

Norðurorka rekur grunninnviði sem samfélagið allt treystir á, allan sólarhringinn alla daga ársins. Fyrirtækið hefur verið með vottað gæðakerfi frá árinu 2009 og er það tekið reglulega út af óháðum aðila. Heilbrigðiseftirlitið hefur á ári hverju tekið sýni til örverugreiningar úr öllum vatnsveitum fyrirtækisins auk þess sem tekin eru sýni til heildarefnagreiningar. Reglulegt vinnslueftirlit fer fram í hitaveitunni þar sem m.a. er mælt efnainnihald vatnsins og lagt mat á heildarafkastagetu vinnslusvæðanna. Árlega eru gerðar spennugæðamælingar í rafveitu til að fylgjast með því að kröfur til spennugæða, sem fram koma í reglugerðum og stöðlum, séu uppfylltar. Í fráveitunni eru framkvæmdar reglulegar sýnatökur meðfram strandlengju Akureyrar, fylgst er með álagi í kringum skilgreind þynningarsvæði í viðtakanum auk þess sem tekin eru sýni inn í hreinsistöð fráveitu bæði fyrir og eftir síun fráveituvatnsins.

Frá árinu 2011 hefur Norðurorka rekið innra eftirlitskerfi með sölumælum sínum sem hluta af gæðakerfi fyrirtækisins. Þessi þáttur gæðakerfisins snýr að því að tryggja réttar mælingar og að mælaskipti fari fram á réttum tíma.

Gott gæðakerfi ýtir undir að allt starfsfólk Norðurorku taki eftir og leiti að tækifærum til að bæta verkferla, auka öryggi og tryggja sem best afhendingaröryggi allra veitna. Rekstur gæðakerfisins er þannig verkefni sem snertir alla þætti fyrirtækisins og því er þátttaka starfsfólks og skuldbinding stjórnenda algjört lykilatriði. Gott gæðakerfi snýst nefnilega ekki einungis um að gera vel heldur snýst það um að gera sífellt betur.

Öryggismál

Ekkert verk er svo mikilvægt að það réttlæti að heilsu eða öryggi starfsfólks sé ógnað. Fyrirtækið leggur metnað í að útvega þann öryggisbúnað sem þurfa þykir til að tryggja megi öryggi starfsfólks og almennings vegna framkvæmda.

Atvikaskráningar

Í Norðurorku er haldin skrá yfir slys og hættuleg atvik hjá fyrirtækinu og ber starfsfólki að tilkynna ef það verður fyrir slíku. Vinnuslys árið 2023 voru níu, þar af tvö fjarveruslys. Óásættanlegar aðstæður, ótryggur búnaður eða annað sem ógnað getur öryggi og/eða heilsu er einnig skráð ásamt næstum slysum og voru þessar skráningar tólf á árinu. Ein skráning barst um ógn, en engin um einelti eða áreitni. Við hverja skráningu fær næsti yfirmaður póst um atvikið og sér hann til þess að úrbætur séu gerðar eins fljótt og auðið er, í samvinnu við þann sem skráði.

Öryggisnefnd Norðurorku

Hjá Norðurorku starfar öryggisnefnd sem fundar að lágmarki átta sinnum yfir árið og oftar ef þurfa þykir. Fundina sitja einnig  öryggisstjóri og verkefnastjóri öryggismála. Nefndin fer yfir atvikaskráningar, t.d. slys og ábendingar frá starfsfólki um hættulegar aðstæður og fylgist með því að úrbætur séu gerðar. Einnig sér öryggisnefndin um að koma öryggismolum, sem varðar heilsu og öryggi, til starfsfólks s.s. inn á Teams síðu fyrirtækisins eða á starfsmannafundum þar sem öryggismál eru alltaf fyrsta mál á dagskrá.

Öryggisfræðsla

Öryggismál er hluti af nýliðafræðslu sem starfsfólk fær á fyrstu dögunum eftir að það hefur störf hjá Norðurorku. Ákveðinn grunnur á við fyrir allt starfsfólk, svo sem vinnuvernd, atvikaskráning, rýming húsnæðis við bruna, staðsetning slökkvitækja og sjúkrakassa svo eitthvað sé nefnt. En einnig er nýliðafræðslan sniðin að þeim störfum sem viðkomandi nýliði er ráðinn inn til að sinna. Áhættur eru mismunandi á milli veitna, t.d. hvort unnið er við rafmagn eða heitt vatn, og því er lögð áhersla á að kynna fyrir nýliðanum áhættumat starfa sem unnið hefur verið af starfsfólki fyrirtækisins.

Í árlegum fræðsluvikum Norðurorku er m.a. boðið upp á ýmsa öryggisfræðslu fyrir allt starfsfólk og á fræðsluvikum 2023 var meðal annars boðið upp á skyndihjálparnámskeið, fræðslu um tölvuöryggi, kunnáttumannanámskeið þar sem farið er yfir hvernig forðast megi hættur í aðveitu- og dreifistöðvum rafveitunnar auk þess sem rafvirkjar fengu námskeið í LMP (læsa, merkja, prófa) þar sem farið er yfir vinnubrögð varðandi það að læsa út búnaði.

 

Til baka - Yfirlit yfir starfsemina